Málning hf
Málning hf var stofnað 16. janúar 1953 og er eina málningarverksmiðjan á Íslandi. Fyrirtækið þróar vörur sínar á eigin rannsóknarstofu og notar alfarið eigin uppskriftir við framleiðsluna.

Innlend vöruþróun er grunnurinn
Innlend vöruþróun fyrir hinar séríslensku aðstæður er grunnurinn að flestum vörum félagsins. Má þar nefna utanhússmálninguna Steinvara 2000, viðarvarnarfjölskylduna Kjörvara, þakmálningarnar Þol og Akrýl Þol og vatnsþynnta epoxýlakkið Epox 1.
Áhersla hefur verið lögð á gott samstarf við erlenda framleiðendur eins og Jotun í Noregi og Loba í Þýskalandi. Málning hefur í gegnum tíðina selt málningu til ýmissa landa og á í samstarfi við færeyska fyrirtækið Kveik, sem framleiðir eftir framleiðsluleyfi frá Málningu.
Hjá fyrirtækinu starfa um 40 manns. Stjórnarformaður er Valdimar Bergstað og framkvæmdastjóri er Baldvin Valdimarsson.
Saga Málningar
- 1953
Málning hf stofnað
Félagið er stofnað 16. janúar. Að stofnuninni standa fjölmargir aðilar, fremst í flokki afkomendur Péturs Guðmundssonar í Málaranum. Fyrsta aðsetrið er gamalt skólahúsnæði við Kársnesbraut 32 í Kópavogi. Fljótlega hefst framleiðsla á Spred Satin, fyrstu vatnsþynntu málningunni á íslenskum markaði.
- 1973
Kópal tekur við
Framleiðslu á Spred Satin lýkur og við taka hinar fjölbreyttu Kópalvörur, sem enn í dag eru stór hluti af vöruúrvali fyrirtækisins.
- 1981
Söludeild á Lyngháls
Söludeild og lager flytja á Lyngháls 2 en framleiðslan og önnur starfsemi heldur áfram á Kársnesbraut.
- 1987
Bruninn á Kársnesbraut
Þann 13. júlí gjöreyðileggst byggingin á Kársnesbraut í eldsvoða. Með miklu snarræði tekst að verja helstu framleiðsluvélarnar og með samhentu átaki starfsfólks og eigenda hefst framleiðsla aðeins nokkrum dögum síðar, fyrst á Lynghálsi 2 og frá október á Funahöfða 9.
- 1991
0% lífræn leysiefni
Málning kynnir umhverfisvæna innimálningu undir heitinu „0% lífræn leysiefni“ og brýtur þannig blað í íslenskri málningarsögu.
- 1998
Dalvegur 18
Lager og söludeild flytja 19. október í þriggja hæða hús við Dalveg 18 í Kópavogi, hannað af Ingimundi Sveinssyni arkitekt. Sama ár fær Málning starfsleyfi, fyrst íslenskra málningarfyrirtækja.
- 1999
Allt undir einu þaki
Þann 1. janúar flytur önnur starfsemi í húsið og þá er loksins allt komið undir einn hatt hjá Málningu hf.
- 2010
Slippfélagið
Í byrjun árs festir Málning hf kaup á stórum hluta reksturs Slippfélagsins í Reykjavík.
- 2018
Svansvottun
Málning hf hlýtur vottun Norræna umhverfismerkisins og leyfi til að merkja tæplega 30 vörur með merki Svansins.
Rannsóknarstofan
Segja má að hlutverk rannsóknarstofunnar sé þrískipt.
- Eftirlit með framleiðslu og hráefnumFylgst er með allri framleiðslu og mælingar gerðar til að tryggja að gæðin séu jöfn, svo viðskiptavinir fái ávallt vöru sem leysir hlutverk sitt jafnvel af hendi.
- Ráðgjöf og tækniþjónustaMikil áhersla er lögð á að viðskiptavinir eigi greiðan aðgang að þeirri þekkingu og reynslu sem er til innan veggja fyrirtækisins.
- VöruþróunVöruþróun er undirstaða framtíðarinnar. Veigamesti drifkrafturinn í þróun málningarefna er umhverfismál, bæði gagnvart ytra umhverfi og vinnuumhverfi.
Rannsóknarverkefni
Málning hefur lagt verulega fjármuni í vöruþróun fyrir steinsteypu utanhúss og tekið þátt í fjölmörgum rannsóknarverkefnum með Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og iðnfyrirtækjum hér heima og erlendis.
- Sprungur í steinsteypu: rannsókn á vatnshegðan og viðgerðarefnum
- Þróun íslenskrar málningartegundar sem dregur úr öldrun steinsteypu
- Vatnsfælnar vegghúðir
- Varanleg lokun sprungna
- Steinfletir utanhúss: ný efnistækni við yfirborðsfrágang
Starfsfólk
Þórður DavíðssonSölustjóriSími 580 6004Farsími 897 4421toti@malning.is
Emil Orri MichelsenSölumaðurSími 580 6005Farsími 897 2641emil@malning.is
Guðjón Finnur DrengssonSölumaður, skipadeildSími 580 6002Farsími 821 8530gudjon@malning.is
Gylfi Már ÁgústssonSölumaðurSími 580 6007Farsími 892 0290gylfi@malning.is
Halldór OlgeirssonSölumaðurSími 580 6009dori@malning.is
Máni Karl GuðmundssonSölumaðurSími 580 6009mani@malning.is
Einar LútherssonEfnafræðingurSími 580 6046einar@malning.is
Húni SighvatssonEfnaverkfræðingurSími 580 6045huni@malning.is
Stefan Baltazar KraszewskiRannsóknir og gæðaeftirlitstefan@malning.is
Sigurður ViðarssonVerkstjóriSími 580 6063sigurdurv@malning.is
Brynjar BragasonLitun og gæðaeftirlitquality@malning.is
Viktor Örn HalldórssonLagerstjóriSími 580 6024viktor@malning.is
Baldvin ValdimarssonFramkvæmdastjóribaldvin@malning.is
Haukur BaldvinssonAðstoðarframkvæmdastjóriSími 580 6040haukur@malning.is
Valdimar BergstaðStjórnarformaðurvaldimar@malning.is
Hjörtur BergstaðStjórnarmaðurSími 580 6071Farsími 893 7475hjortur@malning.is
Kristján ÁsgeirssonFjármálastjóriSími 580 6044Farsími 863 8858kristjan@malning.is
Aðalsteinn AuðunssonVörustjóriSími 580 6031adalsteinn@malning.is
Jón Þór EyjólfssonInnkaupastjórnSími 580 6043jonthor@malning.is
Andrea Bóel BæringsdóttirAðalbókariSími 580 6042andrea@malning.is
Íris Áskels JónsdóttirBókhaldSími 580 6041iris@malning.is
Kolbrún JónsdóttirRitari og afgreiðslaSími 580 6000kolla@malning.is
Viltu vita meira?
Sendu okkur tölvupóst eða hafðu samband við söludeild í síma 580 6000.
