Hvað ætlarðu að mála?
Kópal
Vatnsþynnanleg, lyktarlaus innimálning sem inniheldur engin lífræn leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. Til í mismunandi gljástigum og vottuð með Svansmerkinu.
Litir á skjá eru aðeins til viðmiðunar. Fersk litaprufa gefur raunverulegustu myndina af litnum.
Þróað fyrir íslenskar aðstæður
Málning þróar vörur sínar á rannsóknarstofu fyrirtækisins og þær eru þrautreyndar við íslenskar aðstæður. Fjórar vörufjölskyldur bera uppi framleiðsluna.
Veggir og loftKópalVatnsþynnanleg, lyktarlaus innimálning sem inniheldur engin lífræn leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. Til í mismunandi gljástigum og vottuð með Svansmerkinu.Skoða Kópal
Steinn og múrSteinvariMálning þróuð fyrir múr og steinsteypta fleti utanhúss við íslenskar aðstæður. Steinvari 2000 er þéttur gegn vatni en hleypir raka vel í gegnum sig.Skoða Steinvari
Timbur og pallarKjörvariViðarvörn sem ver og verndar við í íslenskri veðráttu. Kjörvari er til þekjandi, gegnsær og sem pallaolía.Skoða Kjörvari
Bárujárn og þökÞolÞakmálning á bárujárn og aðra málmfleti utanhúss þar sem mikið mæðir á. Þol er alkýðmálning og Akrýl Þol er þynnanlegt með vatni.Skoða Þol Hvaða gljástig hentar?
Kópal innimálning er til með mismunandi gljástigum og talan í heitinu segir til um gljáann. Veldu gljástig og sjáðu hvar málningin á best við.
Kópal 10
Sérlega hentug á stofur, ganga og svefnherbergi þar sem óskað er hálfmattrar áferðar.
- Gljástig
- Hálfmött, um 10 (60°)
- Efnisnotkun
- Um 0,10 l/m² í umferð
- Þurrktími
- 30–60 mín. við 20°C
Hvað þarftu mikið?
Sláðu inn stærð flatarins og fjölda umferða. Reiknivélin notar efnisnotkun úr tækniblaði hverrar vöru.
Áætlað efnismagn
8 lítrar
KÓPAL 10, 40 m² í 2 umferðum.
- Efnisnotkun
- Um 0,10 l/m² í umferð
- Yfirmálun
- Eftir 4–8 klst.
- Þynning
- Vatn
Reiknað samkvæmt tækniblaði vörunnar. Raunveruleg efnisnotkun fer eftir undirlagi og áferð flatarins.
Verklýsingar fyrir hvert verk
Verklýsingar fyrir mismunandi byggingarhluta, allar á PDF.
Utanhúss – steinn
Bárujárn

Umhverfismál frá fyrstu tíð
Málning hf hefur frá upphafi leitast við að vera leiðandi í umhverfismálum og framleiða bestu málninguna fyrir íslenskar aðstæður.
- 1953Fyrst á markað með vatnsþynnta málningu, rétt eftir stofnun félagsins.
- 1991Innimálning merkt „0% lífræn leysiefni“ kynnt til leiks.
- 2018Vottun Norræna umhverfismerkisins og leyfi til að merkja tæplega 30 vörur með merki Svansins.

Eina málningarverksmiðjan á Íslandi
Málning hf var stofnað 16. janúar 1953 og notar alfarið eigin uppskriftir við framleiðsluna. Innlend vöruþróun fyrir séríslenskar aðstæður er grunnurinn að flestum vörum félagsins og Málning býður upp á alla liti sem viðskiptavinurinn óskar.
Hjá fyrirtækinu starfa um 40 manns við sölu, rannsóknir, framleiðslu og þjónustu á Dalvegi 18 í Kópavogi.
Viltu vita meira?
Sendu okkur tölvupóst eða hafðu samband við söludeild í síma 580 6000.
